Blogg að Hætti Grétars
Í fréttum er þetta helst...
:: heim :: póstur ::
er ég á netinu?
Online Status Indicator Online Status Indicator
eldra blogg
tenglar
aðrir bloggarar

Uppskrift
½-mánaðarins

31.1 - 14.2 2003
:: Hátíðarfiskréttur ::
[pdf skrá með mynd]
[prentvæn útgáfa]




23.10.02  

Hæ hó!

Ég ætlaði bara að láta ykkur vita það að ég kem ekki til með að skrifa inn á bloggið mitt næstu vikuna, þar sem það er að byrja próftörn hjá mér. Það er líka búið að vera nóg að gera síðustu daga. Það er sérstaklega búið að vera mikið að gera í kringum leiðsögnina í Pascal áfanganum, að fara yfir skilaverkefni og gera glósur fyrir tímann! Þannig að frá og með deginum á morgun fer öll orka í að læra undir þessi tvö próf, Bioinformatik próf á sunnudaginn og Fysiologi (Lífeðlisfræði) próf á miðvikudaginn. Eftir þessa próftörn ætla ég svo að skella mér í heimsókn til fæðingarstaðar míns, Falun í Dölunum, það verður sko gaman!!

Læt heyra frá mér aftur eftir prófin!



P.s. þið getið samt kíkt hingað inn og lesið bloggið hjá hinum :-)



Grétar Orri skrifaði | 15:29
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


19.10.02  

Heyriði!! Það átti víst að koma ný könnun á fimmtudaginn!! Ég er eitthvað að klikka á þessu :-)

Allavegana er greinilegt að þeir sem tóku könnunina í þetta skiptið eyða talsverðum tíma framan við tölvuna, eins og mig grunaði svo sem.
Hér koma niðurstöður könnunarinnar:

Minna en klst.      0 %
1-2 klst.             28,6 %
2-3 klst.               14,3 %
3-4 klst.               14,3 %
4-5 klst.              28,6 %
meira en 5 klst.    14,3 %

Samkvæmt þessu þá eyða flestir 1-2 klst. eða 4-5 klst. í tölvunni, það er nú þó nokkuð mikið :D Það tekur náttúrulega tíma að fara bloggrúntinn, þ.e.a.s. að flakka á milli allra bloggsíðanna!

En allavegana þá fer núna ný könnun í gang og ég vona að kosningaþáttakan aukist enn meira frá því síðast :-) Ég vil líka minna fólk á að skrifa í gestabókina þegar það kemur í heimsókn, er það ekki venjan þegar maður heimsækir einhvern að skrifa í gestabók :-)

Ha det bra!!


P.s. Það má ekki svindla í könnuninni og kíkja í bók sem gæti hjálpað!!



Grétar Orri skrifaði | 03:25
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


18.10.02  

Var mig að dreyma....... ég þurrkaði stírurnar úr augunum...... opnaði og lokaði augunum ...... var þetta ekki draumur?? ..... þetta var þá alveg dag satt....... FYRSTI SNJÓRINN Í SKÖVDE ER KOMINN!!

Já það var sko gaman að vakna í morgun, líta út og sjá hvíta snjóbreiðu yfir öllu. Ég ætla bara rétt að vona að VeturKonungur sé kominn til að vera, annars er ekkert gaman að þessu :-) Lengi lifi snjórinn HÚRRA HÚRRA HÚRRA!!!

Við snjóumst!!



Grétar Orri skrifaði | 02:36
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


14.10.02  

Úúffff! Hér sit ég við tölvuna, var að koma inn úr kuldanum. Já það er sko kalt útí núna í Skövde og helv.... rigning líka. Ég og Elís vorum semsagt að hjálpa Möddu að setja saman kommóðu sem hún var að fá senda frá IKEA og samsetningin gekk alveg eins og í sögu. Og bara það að labba frá Möddu og heim (sem eru svona 20 skref) var bara skítkalt. Það var svo kalt í kvöld að það snjóaði meira segja aðeins, eða svona hálfgerð slydda. Jæja nóg um veðrið.

Helgin hér á Trängen var mjög fín. Á föstudagskvöldið skelltum ég, Elís, Lovísa og Jóna okkur í sófann hér í Trängen, með í för stelpnanna var tölva, snúrur og einn DVD diskur. Þetta var allt sett saman og tengt við sjónvarpið og eftir dúk og disk fékkst stöðug mynd á draslið :-) Myndin sem varð fyrir valinu var "Lord of the Rings - The Fellowship of the Ring" eða á góðri íslensku Hringadróttinssaga - Fylgdarmenn hringsins. Ég og Elís vorum nú búnir að sjá hana áður, en það spillti nú ekki fyrir. Þessi mynd er alveg rosalega mögnuð sem flestir vita sem hafa séð hana, þá sérstaklega hvað varðar myndatöku, sviðsmyndir og gervi. Við þrjú skemmtum okkur mjög vel yfir myndinni..... já ég sagði við þrjú.... já ég veit að við vorum fjögur..... en þrír af fjórum skemmtu sér mjög vel yfir myndinni.... you see :-) Þegar þessari þriggja tíma skemmtun var lokið tók við nokkur endurskipulagning eða algjör umturnun á blogginu hennar Jónu, við Jóna möndluðum þetta svona sameiningu... er það ekki Jóna? :-) Kvöldinu lauk semsagt að hætti bloggara!!

Laugardagurinn rann upp og okkur Elísar beið hið erfiða verkefni að velja afmælisgjöf handa honum Óla, en hann og Hanna voru búin að bjóða okkur ásamt Lovísu og Jónu til afmæliskvöldverðar um kvöldið. Það var mikil tilhlökkun í veislugestum þegar líða tók á daginn þar sem vitað var að miklar kræsingar yrðu bornar borð. (Segi nánar frá því á eftir) Ég og Elís fórum semsagt í bæjarferð og fórum úr búð úr búð og stundum aftur í sömu búðina til að reyna að finna góða gjöf og loksins rákumst við á alveg snilldar "Snoopy"-glös, semsagt glös með hundinum Snoopy á.... rosalega kjút :-) Allavegana tíminn leið og bjöllunni var hringt hér á Trängen..... hmmm hver ætli það sé hugsuðum við.... nei nei við vissum alveg hverjar þetta voru, þetta voru auðvitað Lovísa og Jóna, því við ætluðum að vera samfó í veisluna. Með fullar hendur af, gjöfum, eftirrétt, tveimur matskeiðum og ýmsum vökva komumst við á leiðarenda og biðin eftir veislunni var brátt á enda. Ilmurinn sem mætti manni þegar maður kom inn til Óla og Hönnu var unaðslegur.... þetta var að vissu leyti kunnuglegur ilmur og munnvatnskirtlarnir voru alveg komnir á fullt. Í forrétt fengum við rjómalagaða aspargus súpu ala Hönnu og með því dýrindis brauðhleif. Þegar súpan var horfin úr skálunum var komið að aðalréttinum..... nammmmmm... Borin var á borð ÍSLENSKT LAMBAKJÖT, með sykurbrúnuðum kartöflum, grænpipar-sveppasósu, blönduðu grænmeti og síðast en ekki síst kanelsteiktum eplabitum. Þetta var sko veisla í lagi, það voru nú bara næstum því jólin og svo þykist Hanna aldrei hafa eldað lambalæri áður, ég bara trúi því ekki. Þetta rann allt saman mjög ljúflega niður og ef þið haldið að sagan sé búin núna, þá skjátlast ykkur all hrapalega. Eftir þennan gómsæta aðalrétt, sem maður át næstum því á sig gat af, var borinn á borðið þvílíkur gúmmelaðis eftirréttur, algjör sykurbomba. Þetta var svona rjóma-vanillu-ávaxta-tobleron-bomba, sem bráðnaði næstum uppí manni og ef maður var ekki orðinn saddur eftir þetta, þá veit ég ekki hvað. Þetta var alveg fyrsta flokks kvöldverður verð ég að segja. Eftir matinn var svo farið upp á efstu hæðina þar sem haldið var afmælispartý og flest allir Íslendingarnir í Skövde mættu auðvitað á svæðið og skemmtu sér konunglega. Kvöldið endaði svo eins og oft áður, að farið var á hinn sívinsæla skemmtistað Kåren og þar var dansað og sungið fram undir lokun. Alveg hreint magnaður dagur.

Á sunnudaginn vorum ég og Elís aldeilis duglegir..... ja bara eins og vanalega... og lærðum eins og vitleysingar... erum nefnilega að vinna í skilaverkefni í Bioinformatik, sem er svolítið yfirgripsmikið, ætla nú ekkert að fara lýsa því hér, þið mynduð bara drepast úr leiðindum held ég :-) Um kvöldið kom svo boð að ofan að allir ættu að láta skrásetja sig..... nei nei nei ekki alveg.... en það kom sending að ofan þrátt fyrir allt (að ofan = frá Lovísu og Jónu. Þær eiga nefnilega heima ofar í götunni), þeim boðum var svarað með ánægju. Boðin voru semsagt sú að Stella væri komin í orlof og væri í miklu stuði.... við fórum semsagt upp til þeirra og horfðum á "Stellu í orlofi".... hún stendur sko fyrir sínu og kitlar auðveldlega hláturstöðvarnar. "Já út með gæruna sagði ég"....."Eeeeeeegggg".... "Meðíferð Seeeaaaáá" osfrv. :-) Mikið gaman og mikið grín það kvöldið.

Það var annars bara fínn dagur í dag þó kuldinn og snjókoman hafi nú tekið sinn skerf af ánægjunni... allavegana þegar maður var enn í sumarjakkanum og strigskónum. Nú má líka bara snjóa og snjóa og svo frysta, þá er þetta fínt..... en það er mjög mikil í bjartsýni, hér í rigingarbænum Skövde.

Hey ég var annars að setja upp gestabók hjá mér, þannig að endilega skrifið í hana og skrifið eitthvað skemmtilegt með :-) Það væri líka rosalega gaman að fá nokkrar línur frá ykkur via rafrænan póst...

Sjáumst skjáumst!



Grétar Orri skrifaði | 14:07
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


10.10.02  

Loksins, loksins...     Bonna-Myndirnar eru komnar á netið

Þið getið bæði farið inn á heimasíðuna mína og smellt þar á Myndir og svo á Partýmyndir eða farið beint inná myndasafnið útfrá þessum slóðum:

Bonnaphesten 2002 - Föstudagurinn 4. október
Bonnaphesten 2002 - Laugardagurinn 5. október


Njótið vel!!



Grétar Orri skrifaði | 18:15
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


9.10.02  

Ný og flottari könnun!!



Grétar Orri skrifaði | 23:10
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::
 

Jæja nú kemur niðurstaða tannkremskönnunarinnar ;-) Því miður voru nú ekki svo margir sem tóku þátt í könnuninni, það hefði verið gaman að fá fleiri svör!! En niðurstaðan er allavegana þessi:

1 Aquafresh
2 Close-Up
3 Colgate         1
4 Crest            1
5 Dental Care  1
6 Pepsodent    2
7 Sensodine
8 Annað
Samtals 5 atkvæði.

Samkvæmt þessari könnun þá er Pepsodent vinsælasta tannkremið, hmmmm ég hélt nú að Colgate væri örugglega vinsælast! Semsagt ég held að allir ættu að skipta yfir í hið sívinsæla tannkrem Pepsodent :-) ...... er það ekki?

Segjum það með "Pepsodent-brosi"!!



Grétar Orri skrifaði | 22:57
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


6.10.02  

Já nú er "Bonnaphest-helgin" runnin sitt skeið!

Það eru eflaust ýmsir sem velta því fyrir sér hvað ég sé eiginlega að meina með Bonnphest, eins og það sé eitthvað sjálfsagt að allir viti hvað það er. Nei það er sko ekkert sjálfsagt, en allir háskólastúdentar hér í Svíþjóð vita sko hvað þetta er.
Bonnaphesten er semsagt haldin hér í Skövde árlega fyrstu helgina í október. Hingað koma þá stúdentar frá hinum ýmsu háskólum í Svíþjóð og "djamma" saman alla helgina. Það skemmtilega við þetta allt saman, er að hér í háskólum Svíþjóðar er hver deild innan skólanna með sinn eigin galla í ákveðnum lit, ja þetta er svona nokkurskonar vinnugalli (eða réttara sagt djammgalli). Svo eru ýmis merki saumuð á gallana s.s. merki námsdeildarinnar, skólans, fánar og margt fleira. Þegar stúdentarnir hittast svo á þessari hátíð þá skiptast þeir oft á merkjum, eru þá með laus merki sem þeir geta gefið og taka við merkjum sem þeir geta svo saumað á sinn galla! Það gilda allavegana tvær reglur um þessa galla: 1. Þeir eiga að vera það stórir að maður gangi örugglega á skálmunum. og 2. Það má ekki þvo þá. Merki þess að maður sé nýliði hér er nefnilega að maður eigi hreinan galla með engum merkjum :-) Þannig að auðvitað þvær maður ekki gallann sinn. Það eru ýmsar fleiri reglur sem gilda, sem sést t.d. á því að sumir eru komnir með öðruvísi litaða ermi eða skálm, en ég ætla nú ekki að fara útskýra það í smátatriðum hvað það táknar!!

Allavegana þessi stóra hátið var um helgina og það var sko djammað bæði á föstudaginn og laugardaginn. Áður en við (ég og Elís) byrjuðum að djamma á föstudagskvöldið var okkur boðið til veislu hjá Lovísu og Jónu. Þar var okkur fengum við mexíkóskar pönnukökur með ýmsu gúmmelaði. Nammmmm. Þær eru barasta hinir bestu kokkar. Að loknu matarboðinu héldu þær frænkur íslendingapartrý þar sem spilað var "Partýdor" semsagt ný heimatilbúin útgáfa að Matador, sem var mjög skemmtileg útgáfa. Reyndar varð erfitt að spila spilið þegar fjöldi partýgesta jókst, þannig að spilinu lauk hljóðlega. Leiðin lá síðan annaðhvort á Kåren eða á pöbbarölt. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og fólk var orðið vel skrautlegt þegar líða tók á seinnipartinn, þó að meira sé ekki sagt :-)

Laugardagurinn rann svo upp og ótrúlegt en satt voru flestir við góða heilsu þegar vaknað var þann morguninn og þá var bara að bíða eftir að næsta jamm myndi byrja, eða þ.e.a.s. taka því rólega fram að kvöldi. Laugardagurinn er stærsti dagurinn á þessari hátið og þá er haldið ball í húsi sem heitir "Valhalla" sem er mun stærri en "Kåren". Allir Íslendingarnir, sem ætluðu að fara á ballið, söfnuðust saman heima hjá Rúnu og þar var sötrað og spjallað þangað til leiðin lá til Valhalla! Þeir sem höfðu djammað kvöldið áður tóku þetta kvöld heldur rólegra hvað varðar magn áfengis, en samt voru allir í góðum fíling... auðvitað. Þarna var hljómsveit sem spilaði og fólk dansaði og söng dátt í skrautlegum, mismunandi merktum og hreinum göllum {:-) Ballið var svo búið um tvöleytið, en þá var bara haldið áfram að djamma fram á nótt!!

Báða þessa daga var myndavélin auðvitað höfð á lofti og ég mun skella myndum frá þessari helgi inn hérna eða á heimasíðuna mína við tækifæri! Eftir þessa tvo miklu djammdaga var dagurinn í dag frekar rólegur og hugurinn beindist aftur að skólanum og skólabókunum.

Þannig var nú sú sagan!! Ég vona að þið hafið líka átt góða helgi!!
Heyrumst!



Grétar Orri skrifaði | 15:15
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


4.10.02  

Bonnaphesten here I come!!



Grétar Orri skrifaði | 10:17
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


3.10.02  

Nýjasta nýtt!

Ég er búinn að setja upp s.k. "könnun vikunnar" hérna á blogginu mínu. Eins og þið sjáið á þessari fyrstu könnun þá verða þetta engar alvarlegar kannanir, þetta er bara svona uppá spaugið. Ég er reyndar ekki alveg svo tæknilegur að úrslitin komi strax fram á skjáinn, en ég hef þann háttinn á að ég set úrslitin úr hverri könnun inn þegar könnuninni er lokið.
Þetta virkar þannig að maður velur bara einn valmöguleika í könnuninni og smellir á "Senda". Neðst í könnuninni eru svo smá upplýsingar um hvernig kosningin sendist!

Vonandi hafið þið gaman að þessu {:-)



Grétar Orri skrifaði | 07:36
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


1.10.02  

Ég sá þessa skondnu frétt á mbl.is núna rétt í þessu:

Sveitarstjórn Raufarhafnar óskar eftir átján nýjum íbúum

Sveitarstjórn Raufarhafnar reynir nú hvað hún getur að fjölga íbúum
sveitarfélagsins um átján fyrir 1. desember nk. þegar ákveðin verður
greiðsla til sveitarfélagsins úr jöfnunarsjóði. Guðný Hrund Karlsdóttir
lagði til á fundi sveitarstjórnar nýverið að greitt yrði fyrir
barneignir
...


Það er verst að maður býr ekki á Raufarhöfn, þá myndi maður bara gera út
á barneignir þar, ef maður getur sagt svo {:-Þ

Ef þið viljið sjá alla fréttina smellið þá bara hérna



Grétar Orri skrifaði | 08:26
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::

Weblog Commenting by HaloScan.com