Blogg að Hætti Grétars
Í fréttum er þetta helst...
:: heim :: póstur ::
er ég á netinu?
Online Status Indicator Online Status Indicator
eldra blogg
tenglar
aðrir bloggarar

Uppskrift
½-mánaðarins

31.1 - 14.2 2003
:: Hátíðarfiskréttur ::
[pdf skrá með mynd]
[prentvæn útgáfa]




30.1.03  

Góða kvöldið kæru lesendur!

Það hafa kannski sumir velt því fyrir sér hvað hafi orðið um "Könnun vikunnar" sem var alltaf hérna á síðunni..... í fyrsta lagi þá var þetta eiginlega aldrei könnun vikunnar að því að hún drógst nú alltaf á langin og var oftast í eina og hálfa eða tvær vikur í senn.... og svo var ég líka bara búinn að missa allt hugmyndaflug um efni í kannanirnar... þannig að hún fékk að fjúka.

EN... nú er komin nýjung á síðuna sem kemur í staðinn fyrir könnun vikunnar..... ég ætla mér að nefnilega að setja inn mataruppskriftir á hálfs-mánaða fresti (á sama stað og Könnun vikunnar var!).... ég treysti mér ekki í að hafa það á viku fresti, það myndi örugglega bara klúðrast... en allavegana í einhverja mánuði mun hér birtast uppskrift á tveggja vikna fresti. Þeir sem eru með Adobe Acrobat Reader geta sótt uppskriftina á því formi (pdf) og fengið þá í sumum tilvikum litmynd af réttinum með :-) Aðrir verða bara að sætta sig við að sækja uppskriftina á textaformi.

Ég vona að þið munið njóta góðs af þessu nýja uppátæki mínu og látið mig endilega vita hvernig ykkur finnast þær uppskriftir sem hér birtast .... þ.e.a.s. ef þið þorið þá að prófa þær :-)

Bon apetit!!



Grétar Orri skrifaði | 16:05
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


28.1.03  

Það er nú ekki mjög gaman að vera æfa gönguskíði eins og vertíðin er núna!! Enginn snjór í bænum og maður þarf þá að leita lengra til að ná í almennilegan skíðsnjó. Upp á Billingen "fjalli" (ætti nú frekar að kallast hæð :-) ) er farið að verða mjög lítill snjór þrátt fyrir að þeir þjappi þetta niður og bæti líka við með gervisnjó.

Við feðgarnir (ég, pabbi og Stefán) skelltum okkur til Fallköping í gær til að komast á skíði.... svona fyrir þá sem ekki vita þá erum við feðgarnir að æfa okkur fyrir hið sk. Vasalopp eða Vasagöngu sem er 90 km skíðaganga sem haldin er fyrsta sunnudaginn í mars á hverju ári..... já við fórum allavegana til Fallköping sem er svona 30 mínútna akstur héðan og þar var bara fín braut. Það var nú reyndar svolítið fyndið að ganga þarna því að eini snjórinn sem var þarna var í brautinni, það var semsagt búið að þjappa snjónum á þeirri ræmu sem brautin er, náttúrulega líka gervisnjór og svo var bara autt í kring..... eins gott að fara ekki mikið útaf sporinu þar maður..... bojnks.. beint á næsta tré eða útí kjarr :-) En þetta var alveg nógu gott til að geta sprett aðeins úr spori... semsagt vel lukkuð skíðaferð :-) Svo er þarna sturtuaðstaða og gufubað og alles þannig að þetta er hið besta mál... eini gallinn er að það tekur svo langan tíma að fara þangað fram og til baka. En það hvíslaði að mér lítill fugl að hér í Skövde myndu snjóflygsur falla af himnum um helgina, þannig að maður heldur enn í vonina :-)

Jæja nóg um skíði og snjó.... langaði bara að deila þessu með ykkur :-)

Við skíðumst!!



Grétar Orri skrifaði | 15:00
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


27.1.03  

Halló halló!

Vildi bara vekja athygli ykkar á því að hún Elín Björk vinkona mína, sem nú er stödd í Oklahoma að stúdera veðurfræði, er komin í hóp bloggara. Það er alveg öruggt að þar verður margt fróðlegt til lestrar!

Njótið vel!



Grétar Orri skrifaði | 04:08
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


26.1.03  

Jæja þá held ég að það sé nú kominn tími til að fara að gera eitthvað í þessu bloggleysi hérna. Þó ég hafi nú sagst ætla að segja frá því hvað ég var að brasa um jólin þegar ég væri búinn í prófunum þá finnst mér nú svolítið langt um liðið frá jólunum til þess. Enda er svo sem ekkert merkilegt þannig frá því að segja, jólin eru alltaf mjög fín. Maður slappar vel af, borðar mikið og vakir mikið.

Það er reyndar svolítið skemmtilegt frá því að segja að ég fór á mitt fyrst Sveitaball milli jóla og nýárs. Það var helvíti gaman. Það var enginn annar en Geirmundur sjálfur sem spilaði og söng og skemmti sveitungunum! Þetta var sko alvöru sveitaball, þarna voru allir úr sveitinni og það var búið að strá kaffikorgi á dansgólfið svo að það yrði auðveldara að dansa á því... það var allavegana mjög gott að tvista á dansgólfinu :D Allavegana það var alveg magnað að upplifa sveitaballsstemmninguna í Eyjafirðinum!

Síðan maður kom hingað til Skaufabæjar aftur er maður næstum því búinn að vera bara lokaður inní herbergi.... gjörsamlega ofan í bókunum og ekki yrt á einn eða neinn og hvað þá að senda tölvupóst... semsagt í hálfgerðri einangrun. En prófin er nú loksins búinn og maður er svona að komast inn í venjulega rútínu aftur.

Eftir alla þessa setu síðan maður kom hingað var það mjög langþráð að komast aðeins útá lífið og það tókst heldur betur í gær. Því að í gær buðu "skötuhjúin" Jóna og Elís til afmælisíslendingapartýs, en þau áttu þann heiðurinn að eiga afmæli í janúarmánuði, Elís 2. janúar og Jóna 11. janúar. Fyrst var spilað á gítar og sungið......nokkrum pizzum hesthúsað og hlustað á handboltaleikinn Ísland - Kvatar í gegnum netið á Rúv! Leikurinn endaði auðvitað mjög vel og því var svo fagnað með hinum sívinsælu hlaupskotum eða JellyShots (eins það heitir víst á Engilsaxnesku) með rjómaslettu ofan á. Eftir pizzurnar frá Kryddunni var svo haldið áfram við gítarspilið og sönginn..... og ýmsir vökvar teigaðir. Á slaginu 21:00 byrjaði svo hið formlega partý og fólkið fór að streyma inn. Þegar líða tók á kvöldið og fólk orðið helvíti skemmtilegt þá var okkur ekki til setunnar boðið en að rölta á hinn sívinsæla stúdentaskemmtistað er nefnist Kåren. Þar var mikið dansað og blaðrað.... og ýmsar sögur fóru á kreik.... sem nótabene verða ekki látnar flakka á þessum almenna miðli. En það var nú bara gaman á Kåren í þetta skiptið og varla þverfóta fyrir Íslendingum þarna..... náttúrulega allir úr partýinu.... og margir með lítinn íslenskan fána í hárinu.... voða gaman. Eftir Kåren lá leið nokkurra í eftirpartý til hans Gísla og svo í eftireftirpartý til Jónu þar sem við (ég, Ari, Lovísa og Jóna) blöðruðum og átum flögur fram eftir nóttu. Þetta var alveg þokkalega góður endir á velheppnuðu kvöldi. Ég vil hér með koma á framfæri þökkum til veisluhaldaranna Jónu og Elísi (og svo auðvitað hinum hundtrygga aðstoðaramanni Jónu, henni Lovísu) fyrir mjög vel-lukkað partý!! Þetta verður vonandi endurtekið að ári liðnu!

Jæja ætla það sé nú ekki farið að verða komið nóg af þessu blaðri hjá mér núna.... enda eflaust ekki margir sem endast svo langt að lesa þessar síðustu línur... :-)

Þessi bloggsíða er semsagt formlega orðin virk aftur :-)

May the Force be with you!



Grétar Orri skrifaði | 15:24
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


15.1.03  

Hmmmmm það hefur nú ekki verið mikið um að vera á þessari bloggsíðu á nýju ári.... en nú er ég í miðri próftíð og ekki verður mikið bloggað þá.... en eftir það verður gerð bót á því og puttarnir ættu að geta farið að hamra á lyklaborðinu aftur af meiri krafti!

Ein ábending: Ef þið eruð með vefsíðu en ykkur líkar ekki slóðin að henni, þá ættuð þið að kíkja á þessa síðu og fá ykkur eigin slóð... maður getur þá líka fengið sér netfang með sömu endingu og vefslóðin ef maður vill! Ég fékk mér allavegana slóðina http://grelli.tk/ og svo netfangið gretar@grelli.tk !!

Lifið heil!



Grétar Orri skrifaði | 15:19
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::


6.1.03  

Jæja þá er maður kominn til Skaufabæjar aftur! Og hér er sko vetrarríki í lagi..... margra sentimetra þykkt snjólag og um 15 stiga frost..... svona á þetta að vera..... sko þegar það er vetur :-)

Segi einhverjar fréttir seinna.... ætlaði bara rétt að láta vita af mér!!



Grétar Orri skrifaði | 15:11
:: skrifa í / skoða Gestabókina mína ::

Weblog Commenting by HaloScan.com